Nánari upplýsingar

Starfsemi og saga MedicAlert

MedicAlert eru alþjóðleg öryggissamtök, rekin án ágóða, sem veita upplýsingar um merkisbera á neyðarstundu og hafa starfað hér á landi í aldarfjórðung. Í Íslandsdeildinni, eru yfir 5000 merkisberar, en höfuðstöðvarnar í Californíu þjóna milljónum merkisberum í yfir 40 löndum.

Um er að ræða þríþætt kerfi: merki úr málmi, plastspjald með ákveðnum upplýsingum auk tölvuskrár.

  • Merkið er borið í keðju um háls eða úlnlið.
  • Plastspjaldið, sem er í kreditkortastærð fyrir veski, er með fyllri upplýsingum.
  • Loks eru ýtarlegastar upplýsingar á tölvuskrá, sem er í vörslu Slysa- og bráðadeildar Landspítalans, en þar er gjaldfrjáls sólarhrings vaktþjónusta fyrir neyðarnúmer MedicAlert.

Á merkið eru skráð 3 atriði:

  • Símanúmer vaktstöðvar á Íslandi, sem hringja má í allstaðar að úr heiminum án endurgjalds. Sjúkdómsgreining eða áríðandi upplýsingar um viðkomandi og að lokum: Persónunúmer, sem veitir aðgang að upplýsingum á tölvuskrá Slysa- og bráðadeildar .

Þegar læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraflutningamenn, lögregluþjónar og aðrir sem koma að sjúklingi í neyð geta þeir með aðstoð MedicAlert fengið lífsnauðsynlegar upplýsingar á svipstundu, sem geta gert útslagið um gang mála í meðferðinni. Oft segja áletranir á merkið allt sem þarf, en einnig geta framangreindir aðilar hringt í neyðarnúmerið, gert grein fyrir sér og síðan fengið nánari upplýsingar, svo sem um áríðandi lyfjanotkun.  Dæmi um sjúkdóma: Flogaveiki, hjartasjúkdómur, sykursýki, blæðingarsjúkdómur, ofnæmi, astma og Alzheimer.

Aðild að MedicAlert er greidd með 4000 kr. stofngjaldi (einfalt stálmerki og spjald innifalið). Viðbótarmerki kosta 2000 kr. minna en viðbótarspjald kostar 500 kr.  Loks er 1.500 kr. árgjald.

Þegar nýtt merki hefur verið gefið út fær merkisberi sent afrit af skráðum upplýsingum til yfirferðar. Til þess að tryggja að upplýsingar séu ætíð réttar er merkisberum sem ekki hafa endurnýjað sjálfir send bréf á tveggja ára fresti með beiðni um uppfærslu.