Úr grein í jólablaði Lions:

 MedicAlert, hvað er nú það?

Dag einn fyrri allmörgum árum kom ungur lögregluþjónn með mann inn í gömlu varðstofuna í Pósthússtræti. Hann hafði hirt hann upp af gangstéttinni í Austurstræti þar sem hann lá og virtist ósjálfbjarga.  Beinast lá við að setja hann í klefa sem þar var, en sem betur fór sá varðstjórinn til hans og fannst þetta ekki passa alveg.  Hann tók strax eftir MedicAlert merkinu á handlegg mannsins, en á því stóð Diabetes mellitus, sykursýki.  Maðurinn var í skyndi fluttur á Slysadeildina þar sem honum var strax sinnt og komst hann fljótt til sjálfs sín.

Önnur saga segir frá konu, sem  þjáðist af slæmu asthma.  Hún ætlaði til læknis og pantaði leigubíl, en þegar hann kom var hún orðin svo móð og andstutt að hún gat ekki tjáð sig, rétti bílstjóranum MedicAlert
 spjaldið sitt, sem hún bar í veski sínu.  Hann tilkynnti í talstöðinni hvað um væri að vera og bað stöðina að síma auðkennisnúmer konunnar á Slysadeildina.  Þegar tekið var á móti henni þar voru læknar búnir að fletta upp sjúkrasögu hennar og lyfjum sem hún notaði að staðaldri.  Þetta flýtti verulega fyrir velheppnaðri læknismeðferð.

 

Hvað er þá MedicAlert?  Það er fjölþjóðlegt neyðarkerfi og eitt besta sinnar tegundar.  Merki sem talar fyrir þá sem geta það ekki sjálfir.  

Kerfið er þríþætt:

  • Áletrað merki til að bera um úlnlið, háls eða annars staðar á sér.  Á merkinu eru upplýsingar    um sjúkdóm, ofnæmi eða annað sem þarf að vita varðandi skyndihjálp. Auk þess er neyðarsímanúmer og auðkennisnúmer eiganda.
  • Plastspjald í kreditkortastærð með frekari upplýsingum, m.a. nöfnum og símanúmerum aðstandenda og lækna.
  • Enn ýtarlegri upplýsingar, sem eru varðveittar í tölvu á Slysa- og bráðadeild Landspítalans. Þar er svarað gjaldfrjálst í neyðarsíma MedicAlert allan sólarhringinn. 

  

 

MedicAlert er alþjóðlegt neyðarþjónustukerfi sem er rekið án ágóða og víða í sjálfboðavinnu.  MedicAlert á Íslandi er deild í alþjóðasamtökunum MedicAlert. Höfuðstöðvarnar eru í Californíu í BNA, en stærstu deildirnar utan BNA eru í Canada, Englandi, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Suður-Afríku. Félagar eru í yfir 40 löndum.

 

MedicAlert á Íslandi var stofnað 30. janúar 1985 að frumkvæði Lionshreyfingarinnar og er sjálfseignar- stofnun sem starfar með leyfi og í samstarfi við MedicAlert Foundation International.  Ásamt Lions- hreyfingunni standa nokkur sjúklingafélög að Medicalert á Íslandi.

 

Rekstur MedicAlert hefur verið í járnum undanfarin ár, en fjöldi Lionsklúbba hafa styrkt stofnunina með fjárframlögum.  Fyrir þremur árum var samþykkt að leggja árgjöld á merkisbera, sem mun létta verulega á rekstrinum í framtíðinni.  Ýmsir eru þó undanþegnir árgjöldunum, svo sem börn upp að 18 ára aldri og og þeir sem fengu merki fyrir samþykktina um árgjöldin, en þeir eru ævifélagar.

 

 

Með ósk um gleðileg jól,

Magnús B. Einarson, formaður MedicAlert á Íslandi.  Til baka.

deildirnar
neyðarþjónustukerfi