Á fjölmennum jólafundi MedicAler á Íslandi 2009 var Magnúsi Steingrímssyni veittur heiðursskjöldur frá Alþjóðasamtökum MedicAlert. Þar kom fram þakklæti fyrir það einstaka starf sem hann hefur unnið fyrir MedicAlert á Íslandi. Á síðastliðnum 20 árum hefur hann í sjálfboðavinnu grafið á 75% af öllum áletrunum frá upphafi af mikilli samviskusemi og útsjónarsemi. Á myndinni eru Magnús Steingrímsson, Lkl. Vála og Magnús B. Einarson, formaður MedicAlert á Íslandi, Lkl. Mosfellsbæjar. Til baka
Kynning á MedicAlert
Vikuna 18. til 22. jan. 2010 var MedicAlert með kynnningu á Læknadögum í kaffi- og sýningarsal Læknadaga á Hilton hótelinu með myndasýningu á tölvuskjá. Læknadagar eru stærsta ráðstefna íslenskra lækna hvert ár. Til baka