Fréttir

Fréttir, tilkynningar og fleira

 

Frétt af afmælisfundinum.

Þann 26. janúar s.l. var haldið upp á 25 ára afmæli MedicAlert á Íslandi.  Boðið var til fundarins forsvarsmönnum þeirra aðila sem tengjast Medicalert og mættu fulltrúar velferðarráðherra, ríkislögreglustjóra, sjúkraflutningamanna, björgunarsveita, bráðasviðs Landspítalans og fulltrúar viðskipta- og stuðningsaðila.  Þar að auki mættu læknar, hjúkrunarfræðingar og loks fjöldi Lionsfélaga og fulltrúar aðildarfélaga Medicalert, alls um 50 manns.

 

Fluttar voru ræður og erindi flutt um upphafsár og starfsemi MedicAlert.  Loks var boðið upp á kaffi og meðlæti.  Má segja að hér hafi vel til tekist með kynningu á starfinu.

12. jan. 2011.  Afmælisfundur.

Miðvikudaginn 26. jan. verður haldið upp á 25 ára afmæli MedicAlert á Íslandi með opnum fundi kl. 17 að Sóltúni 20, 2. hæð.  Aðalmarkmið fundarins er kynning á MedicAlert.  Veitingar verða í boði.  MedicAlert var stofnað 30. janúar 1985 að tilhlutan Lionshreyfingarinnar á Íslandi, sem hefur staðið við bakið á MedicAlert alla tíð síðan.

 6. jan. 2011.  Þýðing vefsíðu á fleiri tungumál.

Fyrirhugað er að hafa vefsíðuna á ensku og pólsku og þýða seinna á fleiri tungumál.  Okkur vantar góðan þýðanda fyrir pólska textann.  Gott væri að fá ábendingu um þýðanda á netfangið hér að neðan eða í síma.

1. des. 2010.  Árgjald fyrir árið 2009.

Sendir hafa verið út greiðsluseðlar vegna árgjalds 2009.  Þeir sem fá slíka seðla eru þeir sem samið hafa um merki eftir 1. okt. 2006, en þá var ævigjald aflagt nema hjá eldri merkisberum.
Þeir sem eiga erfitt með að greiða árgjaldið geta sent póst á medicalert@medicalert.is eða hringt í síma 533 4567 eða komið á skrifstofuna í Sóltúni 20, 105 Rvk. og við munum finna lausn á því máli.

18. febrúar 2010.  Fjárþörf Medicalert.

Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni er MedicAlert rekið með tapi og hefur árum saman verið styrkt af Lionshreyfingunni.  Árgjöldin, kr. 1500, sem tekin voru upp haustið 2006 hafa illa skilað sér. Bæði höfum við ekki krafiði börn að 18 ára aldri um þau og svo eru margir, sem eiga erfitt með að borga um þessar mundir.  Við óskum því eftir fjárstyrk til starfseminnar.  Styrktaraðilar með hvaða hætti sem er eru hjartanlega velkomnir.  Styrki má leggja inn á bankareikning okkar:         701-26-901.  Upplýsingar eru veittar á skrifstofunni, í síma eða með netpósti.

10. febr. 2010.  Útsending fréttabréfs í tölvupósti.  Ekki fá allir tölvupóst.  Lesið hér.

22. jan. 2010.  Læknadagar.  Alla síðustu viku hefur MedicAlert verið með kynningu í kaffi- og sýningartsal á Læknadögum með myndasýningu á tölvuskjá.  Læknadagar eru stærsta ráðstefna íslenskra lækna hvert ár.

17. nóv. 2009.  Kynningarmál.
Unnið er af krafti við að kynna MedicAlert kerfið þessa dagana. Það er í hag hverjum MedicAlert merkisbera að sem flestir þekki merkið og kunni að bregðast við því í neyðartilfellum.  Því er lögð áhersla á að fræða starfsfólk í heilbrigðiskerfinu, svo og sjúkraflutningamenn, lögregu og fleiri.
Gott væri að fá ábendingar um það frá hjálpfúsum lesendum hvort umsóknareyðublöð vanti á heilsugæslustöðvar og í apótek.  Senda má póst um það til medicalert@medicalert.is eða hringja í síma 533 4567.  Til baka

 

Grein úr jólablaði Lions: MedicAlert, hvað er nú það. sjá hér.

Magnús Steingrímsson heiðraður, sjá hér.